<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T21:48:53" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:50:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:48:53">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Aftur þakka ég hv. þm. Braga Þór Thoroddsen fyrir samtalið,
    athugasemdina. Það er bara nákvæmlega það sem hann nefnir hér sérstaklega
    sem skiptir máli. Ef við erum ekki tilbúin a.m.k. samhliða þróun svona
    atvinnugreina — sem hafa þessi burði til að vaxa og skipta jafnmiklu máli
    og þær gera í nýsköpun, í nýjum tækifærum, fyrir ákveðin byggðarlög sem
    hafa ekki alveg sömu tækifæri og þéttbýlið hefur til að byggja upp
    atvinnustarfsemi, til að tryggja íbúum atvinnutækifæri, til að laða að
    menntað starfsfólk sem hefur áhuga á að byggja upp samfélagið sitt og
    standa að verðmætasköpun — þá erum við að missa svo mörg tækifæri. Ég trúi
    því. Hv. þingmaður er hokinn af reynslu, bæði úr Súðavík og í nýju starfi,
    og kemur við sögu í báðum þeim landshlutum sem ég er ekki síst með í huga
    þegar kemur að þessu, þannig að ég bara hlakka til áframhaldandi samstarfs
    um þessi mál.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>