<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T21:50:13" skst="HHL" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:52:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:50:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar til að byrja á að þakka hæstv.
    atvinnuvegaráðherra fyrir gott samtal hér í kvöld og margar gagnlegar
    spurningar hafa komið fram nú þegar. Mig langar til að beina sjónum mínum
    að ferðaþjónustunni, þessari ótrúlegu grein sem hefur sannarlega fært líf
    í sveitir landsins og hefur þann ótrúlega eiginleika að það eru svo margir
    sem hafa tekið þátt í uppbyggingunni, margir litlir aðilar en líka stærri.
    Þetta er svo fjölbreytt flóra sem á mikla hagsmuni þarna undir. Við vitum
    af því að ferðamannafjöldi hefur fimmfaldast frá 2007, fimmfaldast, og
    bara á undanförnum árum hafa gríðarlega margir verið að leggja undir í
    fjárfestingu, við húsakost, til að undirbúa sig fyrir áframhaldandi
    vöxt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við sjáum í þessu frumvarpi mikla breytingu á ýmsum póstum er
    varðar kostnað sem lendir á ferðamönnum. Þetta er í raun og veru breyting
    sem er ekki gerð með miklum fyrirvara á grein sem þarf stöðuga umgjörð og
    ég held við séum öll að vinna að því sama, að hún sé með stöðuga umgjörð.
    Mig langar því til að spyrja hæstv. ráðherra: Gerði hæstv. ráðherra og
    hennar ráðuneyti einhvers konar áhrifamat eða næmnigreiningu á því hvers
    kyns áhrifa kynni að gæta af þessari breytingu? Ef svo var, eru einhver
    viðbrögð í farvatninu ef við munum sjá samdrátt eða einhvers konar planað
    samtal um það hvernig við ætlum að snúa bátnum við? Þetta er svo ótrúlega
    viðkvæmt jafnvægi, alveg eins og við sáum með skemmtiferðaskipin. Það
    getur verið erfitt að snúa aftur við <ns:bjalla/> þegar við erum búin að
    taka ákvörðun um gjaldtöku eins og var gert í því tilfelli þannig að mig
    langar til að heyra þetta frá hæstv. ráðherra.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>