<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T21:52:35" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:55:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:52:35">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir mjög góðar
    spurningar og áframhald af mjög góðri og dýrmætri umræðu hér um
    ferðaþjónustu almennt. Ég tek heils hugar undir að eitt af því fjölmarga
    sem gerir ferðaþjónustu svo skemmtilega er að þar starfa alls konar
    aðilar, lítil fyrirtæki, stór fyrirtæki, ungir aðilar, nýir aðilar, ný
    fyrirtæki, gömul fyrirtæki o.s.frv., hringinn í kringum landið. Ég nefni
    það svona í framhjáhlaupi, af því að við höfum stundum átt samtöl um
    landbúnaðinn, að eitt af áhugamálum mínum er að tengja þessar tvær
    atvinnugreinar svolítið saman. Ég heyri það á ferðamönnum að þeir hafa
    áhuga á því að kynnast landi og þjóð og það sama á við um svokallaða
    menningarferðaþjónustu þannig að þó svo að ferðamenn komi hingað til að
    kynnast náttúrunni okkar, okkar einstöku náttúru, eigum við alveg fleiri
    ása uppi í erminni. En það er önnur saga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður spyr eðlilega um það hvað við höfum unnið til þessa
    með næmnigreiningar og án þess að virðisaukaskatturinn sé á mínu borði er
    það þó þannig að þar koma áform fram í fjármálaáætlun í vor. Það er
    fyrirvarinn. En þegar kemur að þessu náttúru- og innviðagjaldi, til
    viðbótar við það að vera einfaldlega í stefnuyfirlýsingu
    ríkisstjórnarinnar, þá hefur, ég held að það sé bara rétt að segja
    undanfarin ár, átt sér stað vinna með ráðuneytinu og hagsmunaaðilum í
    ferðaþjónustu. Sú vinna stendur enn yfir þannig að þar eru menn meðvitaðir
    um þessi mál algerlega niður í smæstu atriði, ég held að ég geti sagt það
    a.m.k. um þessa helstu hagsmunaaðila, en málið er auðvitað ekki komið fram
    enn þá. Síðan er það með þetta mál eins og öll önnur að við sjáum ekki
    allt fyrir. Hv. þingmaður nefnir hér t.d. gjaldið á skemmtiferðaskip, sem
    var reyndar ári seinna lækkað verulega, þannig að auðvitað er sú vegferð
    líka til og þó að gárungarnir segi að skattur eða gjöld sem sett eru á séu
    aldrei tekin til baka er það ekki alveg svo. <ns:bjalla/> En þetta þurfum
    við alltaf að vera með í huga. Við þurfum að gæta að því. En mótvægið eru
    markaðsherferðir og mótvægið er sá ávinningur sem næst með hallalausum
    fjárlögum <ns:bjalla/> til þess að fá verðlagið niður. Það þarf engin
    náttúru- og innviðagjöld í dag til þess að ferðamenn fölni hér yfir
    verðlaginu. Það er bara almennt verðlag í verslunum sem kemur til vegna
    fjármagnskostnaðar þeirra sem þar vinna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>