<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T21:55:16" skst="HHL" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:56:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:55:16">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og ætla
    að byrja á að taka undir þetta varðandi tenginguna við landbúnað. Í mínum
    huga er það þannig að ferðaþjónusta á Íslandi er ekkert í raun og veru án
    þess að hún sé hugsuð í samhengi við matvælaframleiðslu og blómlegar
    sveitir. Ferðamenn vilja menningu og við þurfum að hugsa þessa hluti í
    samhengi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi náttúru- og innviðagjaldið hjó ég eftir því að hæstv.
    ráðherra talaði um náttúrupassann sem var settur fram fyrir a.m.k. áratug,
    eitthvað svoleiðis. <ns:frammíkall skst="atvvrh.">Já. </ns:frammíkall>Í
    mínum huga hefði sú lausn gjörbreytt þeirri martröð sem margir upplifa í
    dag varðandi það að við höfum verið að færast í átt að bandarísku leiðinni
    þar sem þú gjörsamlega þarft að borga þig inn á hvern einasta foss, hvern
    einasta hlut. Til skamms tíma getur það verið gróðavon fyrir einhverja en
    til lengri tíma getum við verið að drekkja ferðamönnum <ns:bjalla/> í
    gjöldum og draga úr samkeppnishæfni. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra:
    Erum við að halda áfram á brotakenndari leið með því að hugsa eitt gjald
    fyrir Gullfoss <ns:bjalla/> og Geysi og eitt mögulega fyrir eitthvað annað
    í staðinn fyrir að fara nýsjálensku leiðina og hafa þetta bara eitt gjald
    fyrir landið í heild sinni?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>