<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T21:56:46" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:58:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:56:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Aftur þakka ég fyrir góða spurningu og er farin að hlakka
    til samtalsins þegar náttúru- og innviðagjaldið verður hér til umræðu.
    Stutta svarið er þetta: Við erum að horfa til þess að draga úr þessari
    flækju sem núverandi staða er með gjöldin en það leysir ekki vandann
    alveg. Nú kem ég að öðru sameiginlegu áhugamáli okkar; hvernig jarðalögin
    eru og hvernig staðan er með mismunandi eignarhald á hinum ýmsu
    áfangastöðum í ferðaþjónustu. Ríkið hefur eitthvað um það að segja, með þá
    staði sem eru í eigu ríkisins en gjaldtaka annars staðar, þannig að
    einhvers staðar í framtíðinni væri óskandi að allir aðilar gætu unnið
    saman með einhverja tækniútfærslu á því til að einfalda málið fyrir
    ferðamenn. Það er lykilatriði. En við erum að byrja á þessu skrefi sem eru
    staðir í eigu okkar, þ.e. ríkisins, og við berum ábyrgð á. Markmiðið þar
    er að tryggja, efla og styrkja innviðina og það er sannarlega markmiðið að
    einfalda þetta en ekki bæta á þennan gjaldtökufrumskóg. Við erum að
    einfalda þetta eins best og við getum. <ns:bjalla/> Ég tek hins vegar
    undir það, eins og ég sagði áðan og hv. þingmaður er mér sammála, að
    verkefnið hefur ekki orðið einfaldara frá því fyrir tíu árum þegar það
    þótti of flókið að koma því í framkvæmd, það er bara þannig. <ns:bjalla/>
    Nú er það hins vegar gersamlega nauðsynlegt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>