<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T21:58:18" skst="IAS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 22:00:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:58:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Fyrir stuttu síðan var mikið rætt um og barist
    fyrir því að gera ferðaþjónustuna að heilsársgrein. Jafna þyrfti út
    árstíðasveifluna og betrumbæta starfsumhverfi greinarinnar þannig að svo
    mætti verða. Árið 2014 var t.d. verkefninu Ísland allt árið hleypt af
    stokkunum af stjórnvöldum sem hluti af „Inspired by Iceland“.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Það er ekki lengra síðan að við vildum reyna að festa
    ferðaþjónustu í sessi sem heilsársatvinnugrein og auka arðsemi í
    greininni. Baðlón eru vinsælir áfangastaðir og eru mikið aðdráttarafl
    fyrir lítil samfélög úti á landi, búbót jafnvel. Laugarás Lagoon, Vök á
    Egilsstöðum og Jarðböðin við Mývatn. Þessi baðlón gera þorpin í kring að
    ákjósanlegri áfangastöðum en ella. Fólk kemur, baðar sig, borðar á
    veitingastaðnum og gistir svo í nærsamfélaginu. Persónulega finnst mér
    þetta frábær þróun og ég er einlægur aðdáandi baðlóna. En það eru ekki
    bara ferðamenn sem sækja þessi böð, t.d. í Vök og í Skógarböðunum á
    Akureyri er meiri hluti gesta á veturna Íslendingar, hvort sem það eru
    íbúar á svæðinu eða aðkomufólk. Það er ekkert launungarmál að meiri hluti
    ferðamanna ferðast ekki víðar en um Suðurlandið og suðvesturhornið. Það er
    verkefni okkar stjórnmálamanna að reyna að skapa ferðaþjónustunni umgjörð
    sem hún þarf til að stækka og dreifa ferðamönnum jafnar yfir landið árið
    um kring. Ferðaþjónustan er nefnilega útflutningsgrein sem skapar okkur
    nauðsynlegar gjaldeyristekjur og án þeirra getum við illa verið og ættum
    að kappkosta að efla slíkar undirstöður.</ns:mgr>

    <!--segir jarðböðin á Mývatni en á síðu þeirra er: Jarðböðin við Mývatn -->

    <ns:mgr>Í þessu ljósi skýtur skökku við að baðlón séu nú tekin sérstaklega
    út fyrir sviga og færð upp um virðisaukaskattsþrep. Það má benda á að
    ársreikningar þessara fyrirtækja gefa ekki til kynna að það sé verið að
    maka krókinn með nokkrum hætti. Svo eru búnar að vera miklar fjárfestingar
    í þessari grein á síðustu árum og því er fyrirsjáanleikinn gríðarlega
    mikilvægur. Því vil ég spyrja hæstv. atvinnuvegaráðherra af hverju það sé
    verið að taka baðlón sérstaklega út fyrir sviga og færa þau upp um
    virðisaukaskattsþrep.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>