<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T22:00:35" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 22:03:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T22:00:35">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Ég þakka hv. þm. Ingveldi Önnu Sigurðardóttur fyrir góða
    fyrirspurn og hún er á pari við það sem hefur komið fram hér í umræðunum
    almennt. Þessar áherslur sem hv. þingmaður nefnir að séu svo mikilvægar,
    að ná að tryggja eins og við getum, með þeim tækjum sem við höfum yfir að
    ráða, dreifingu ferðamanna meira um landið allt annars vegar og hins vegar
    dreifingu ferðamanna á milli árstíða. Það hangir eiginlega saman vegna
    þess að það liggur fyrir að á þessum köldu tímum þegar ferðamönnum fækkar,
    eins og við þekkjum, þá eru það akkúrat þessi kaldari svæði sem finna
    fyrir því þannig að þetta er svo stórt verkefni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er alveg rétt sem hv. þingmaður nefnir að baðlónin eru misvel
    stödd. Þessi atvinnugrein hefur vaxið og bætt alveg stórkostlega í flóru
    okkar í ferðaþjónustunni og þessi vellíðunarferðaþjónusta sem við erum að
    verða býsna leiðandi í er algerlega frábær nýjung. Mörg þessara fyrirtækja
    njóta mikillar eftirspurnar en það eru þessi svæði, eins og ég nefndi fyrr
    í kvöld og hv. þingmaður nefnir, fyrir austan og fyrir norðan og síðan á
    öðrum svæðum þar sem er ekki jafn mikill fjöldi ferðamanna. Þessir staðir
    skera sig úr að því leyti að Íslendingar koma þarna líka. Ég get bara sagt
    það að við erum að hefja samtöl, erum að undirbúa samtöl og erum í samtali
    um það hvernig við getum á einhvern hátt með markaðssetningu og með þeim
    tækjum og tólum sem við höfum, m.a. með Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
    sem ég nefndi sérstaklega áðan, stutt við þessi svæði. Spurning hv.
    þingmanns hins vegar um það hvers vegna baðlónin eru tekin sérstaklega út
    og sett í hærri flokk líkt og þekkist í löndunum í kringum okkur er
    kannski spurning sem ég held að ráðherra skattamála verði að svara
    <ns:bjalla/> vegna þess að þetta mál er ekki á minni könnu. Ég er að vinna
    með hæstv. fjármálaráðherra í því að ná utan um umgjörðina um
    ferðaþjónustu almennt en nákvæmlega <ns:bjalla/> hvað varð þess valdandi
    verður sá ráðherra sem tók þessa ákvörðun að svara.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>