<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T22:03:09" skst="IAS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 22:04:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T22:03:09">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að ég sé ekki hvernig
    aukin skattlagning á þessa grein mun dreifa ferðamönnum jafnar yfir landið
    en það er bara mín sýn. <ns:frammíkall/> En það er augljóst af orðræðu
    hæstv. ráðherra og stjórnarliða að ef einni atvinnugrein gengur smá vel þá
    skal sko skattleggja hana. Bara í þessum fjárlögum er verið að hækka
    skatta á ferðaþjónustuna um 10–11 milljarða á einu bretti. Það sér það
    hver maður að það mun koma niður á samkeppnishæfni greinarinnar. Hvað
    næst? Aðrar greinar ferðaþjónustu eru einnig í neðra
    virðisaukaskattsþrepi. Mega þær vænta þess að verða næst í röðinni? Þegar
    sitjandi ríkisstjórn var mynduð þá sagði hæstv. utanríkisráðherra, sem er
    einnig formaður Viðreisnar, mjög skýrt að það ætti ekki að hækka
    virðisaukaskatt á ferðaþjónustuna. Af hverju varð þessi stefnubreyting,
    hæstv. atvinnuvegaráðherra?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>