<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T22:04:13" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 22:05:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T22:04:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Hv. þingmaður slær engar keilur með því að snúa út úr
    orðum mínum eða leggja mér eitthvað í munn sem ég ekki sagði. Þegar ég
    talaði um dreifingu ferðamanna var ég að ræða náttúru- og innviðagjald sem
    er ætlað til þess og mun verða til þess. Það gjald sem verður tekið af
    ferðamönnum við komuna hingað verður m.a. nýtt til að tryggja dreifingu
    ferðamanna, svo það sé sagt aftur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi spurningu hv. þingmanns þá ætla ég aftur að vísa í það að
    ég er hér til að svara fyrir þau mál sem eru á mínu málefnasviði og varða
    risastórt ráðuneyti atvinnuvega. Ferðaþjónusta er þar undir, skattamál eru
    þar ekki þannig að aftur verð ég að vísa spurningum hv. þingmanns um orð
    og gerðir annarra ráðherra til þeirra. Þeir hafa báðir staðið hér fyrir
    svörum í dag og það eru hæg heimatökin.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>