<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T22:05:51" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 22:07:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T22:05:51">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Stóra markmiðið okkar með því að leggja fram hallalaus
    fjárlög í fyrsta skipti um árabil er að ná niður verðbólgu og vöxtum. Ég
    er, líkt og aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar, stjórnarþingmenn og mjög
    margir þess utan, sannfærð um að það er fátt sem við gerum betra fyrir
    okkar helstu atvinnugreinar en nákvæmlega það. Það er hins vegar ástæða
    fyrir því að þetta hefur ekki verið reynt lengi og er verkefni sem ekki
    hefur tekist að ljúka: Það er erfitt. Það er gríðarlega erfitt, hvort sem
    er tekju- eða gjaldamegin. Ég hefði gjarnan viljað að hér væru bara sem
    lægstir skattar úti um allt og að hér væru sem mest útgjöld á þær
    velferðargreinar okkar sem þess þyrftu. Til að ná þessu þurfum við að ná
    hallalausum fjárlögum og það er markmiðið. Þannig að svarið er: Náum við
    því er þetta til þess unnið. Það er einfaldlega þannig. Þetta er stóra
    verkefnið okkar. Við getum ekki haldið áfram að pissa í skóinn okkar. Það
    er engum til góðs og allra síst ferðaþjónustunni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>