<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T22:07:12" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 22:08:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T22:07:12">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og vil þá í þessari
    síðustu innkomu minni hér í kvöld spyrja hæstv. ráðherra um afstöðu hennar
    til þeirra sjónarmiða sem samtök fyrirtækja í ferðaþjónustu hafa sett fram
    undir formerkjunum „Stækkum kökuna“. Telur hæstv. ráðherra að þessar
    viðbótartekjur í ríkissjóð, sem svo sárlega vantar að mati ráðherra og
    fjármálaráðherra sérstaklega, hefðu getað komið með öðrum hætti en með
    þessari miklu beinu auknu gjaldtöku og sköttum af greininni sem ber býsna
    hátt hlutfall þeirra viðbótarskatta og gjalda sem lögð eru á núna?
    Ferðaþjónustan er að fara ansi illa út úr þessu, svo það sé bara orðað
    varlega. Því langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hver afstaða hennar sé
    til þeirra sjónarmiða sem samtök aðila í ferðaþjónustu setja fram undir
    yfirskriftinni „Stækkum kökuna“.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>