<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T22:08:20" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 22:09:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T22:08:20">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og auðvitað er
    markmiðið að stækka kökuna og það á við um velflestar atvinnugreinar. Ég
    held að það megi fullyrða að sú kaka verði ekki síst stækkuð með því,
    aftur, að stemma stigu við vöxtum og verðbólgu sem stuðla að háu verðlagi,
    sem er stærsti einstaki þátturinn í því að ferðamenn hugsa sig um að koma
    til landsins. Það er staðreyndin, verðlag almennt. Ég hef farið yfir það
    hér, og mun gera betur þegar frumvarpið kemur fram, að náttúru- og
    innviðagjaldið er að mínu mati til þess fallið að efla ferðaþjónustuna
    frekar en að draga úr henni. Og þá erum við kannski búin að flysja utan af
    því sem ég held að hv. þingmaður sé að ræða og það er virðisaukaskatturinn
    á baðlónin, sú ákvörðun að hætta að hafa þennan hluta ferðaþjónustunnar,
    sem hefur verið að springa út og er gríðarleg eftirspurn eftir, í
    afsláttarhluta virðisaukaskattsins <ns:bjalla/> og færa hann upp til jafns
    við það sem aðrar atvinnugreinar greiða. Hvort það eitt og sér sé til þess
    fallið að stækka ferðaþjónustuna — ég er ekki með spádómshattinn á mér
    <ns:bjalla/> og átta mig ekki á því en ég held að ég treysti mér til að
    fullyrða að heilt yfir ráði atvinnugreinin við þetta. Þetta er á pari við
    það sem aðrar atvinnugreinar og ferðaþjónustan í löndunum í kringum okkur
    er að greiða. <ns:bjalla/> Síðan verðum við auðvitað bara að fara yfir
    þessi mál og skoða reynsluna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>