<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T22:10:15" skst="HHL" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 22:11:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T22:10:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar aftur til að þakka hæstv. ráðherra
    fyrir að eiga þetta samtal hér í kvöld. Það er búið að vera gagnlegt á
    marga vegu. Mig langar í seinni umferð að færa mig yfir í landbúnaðinn. Ég
    veit að eitt af því sem við brennum fyrir snýr að fæðuöryggi, snýr að
    nýliðun í landbúnaði til að tryggja fæðuöryggi. Ef við erum ekki með
    nýliðun þá grefur smátt og smátt undan stéttinni alveg eins og við höfum
    verið að sjá fækkun þegar við horfum aftur í tímann. Það er algerlega
    bráðnauðsynlegt að við séum að hugsa um atvinnumálin með þeim hætti að við
    snúum þessari þróun við og við séum í eitt skipti fyrir öll að ná
    viðspyrnu. Það snýr að mörgum þáttum sem varða fjárlögin. Það getur snúið
    að erfðaskattsmálum, getur snúið að hvötum sem tryggja það að jarðir geti
    færst á milli kynslóða og það getur líka snúið að þeim sem vilja
    einfaldlega koma nýir inn í greinina. Þegar ég horfi á frumvarpið þá sé ég
    ekki þessa sameiginlegu áherslu sem mér finnst ríkisstjórnin hafa talað
    fyrir, ég sé hana ekki birtast í fjárlögunum sjálfum. Mig langar til að
    spyrja hæstv. ráðherra hvernig leiðin sé fram á við, hvort við sjáum þetta
    ekki í fjárlögunum og hvort það séu einhverjar aðrar leiðir, bara til að
    gefa mér aðeins fyllri mynd.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>