<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T22:11:55" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 22:14:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T22:11:55">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir
    fyrirspurnina. Við erum komin í landbúnaðinn og það er vel. Það er rétt
    hjá hv. þingmanni að það er ekki stórar breytingar á þeirri atvinnugrein
    að sjá í fjárlagafrumvarpinu og nærtæk skýring er sú að að öðru óbreyttu
    renna búvörusamningar út núna um komandi áramót. Í ljósi þess að það urðu
    ríkisstjórnarskipti á viðkvæmum tíma fyrir endurnýjun þeirra vinnu við
    starfsumhverfi landbúnaðarins, þá var farið í það af hálfu
    atvinnuvegaráðuneytisins og forystu Bændasamtakanna að framlengja
    búvörusamningana um eitt ár. Það er frumvarp sem ég hef þegar kynnt og
    verður tekið fyrir núna á fyrstu dögum þingsins, vona ég, þ.e. að
    búvörusamningar verði, óbreyttir, framlengdir um eitt ár. Með öðrum orðum,
    það verða engar stórkostlegar breytingar og þar af leiðandi endurspeglast
    sú staða í fjárlagafrumvarpinu. En við erum á fleygiferð í vinnu við að
    útfæra nýtt kerfi fyrir starfsumhverfi landbúnaðar og þegar það klárast
    mun þess sjást stað í næstu fjárlögum í raun og veru, hver sem niðurstaðan
    verður en einhverjar breytingar væntanlega. Það er kannski stóra
    málið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er auðvitað rétt sem hv. þingmaður nefnir og ég tek undir það,
    við vitum hver þessi verkefni eru og í stefnuyfirlýsingu
    ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á nýsköpunina, það er talað um nýliðun
    og kynslóðaskipti og það er talað um loftslagsmálin og auðvitað eru
    jarðalög stór hluti þar líka. Þetta spilar allt saman. Og af því að við
    höfum verið að ræða svo mikið um ferðaþjónustu þá er það t.d. eitt sem við
    þurfum að taka inn í og ég vænti mikils af samvinnu við hv. þingmann og að
    fá að njóta sérþekkingar hennar þar. Staðreyndin er auðvitað sú að bestu
    jarðirnar okkar eru bestar í öllu, þær eru oft og tíðum besta landið til
    búrekstrar en þær eru líka besta landið <ns:bjalla/> fyrir ferðaþjónustu
    o.s.frv. Þetta er svona stóra verkefnið fram undan en þessi vinna er sem
    sagt á fullu og veturinn fer í það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>