<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T22:14:17" skst="HHL" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 22:15:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T22:14:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Við
    þekkjum þessa frestun en ég verð að segja að ég er óþolinmóð að sjá
    breytingar eins og t.d. á skattaumgjörð og öðru sem getur nýst því þetta
    er einfaldlega grein sem þolir ekki bið. Ég tek undir með hæstv. ráðherra
    að vissulega er það þannig að margar jarðir nýtast fyrir ólíka hluti og ég
    held einmitt að það sé spennandi þegar við hugsum um framtíð
    landbúnaðarins. Þetta er fjölbreytt grein sem á svo mikið inni, endalaus
    sóknarfæri sem við þurfum einhvern veginn að ná utan um í nýjum samningum
    og ég vænti mikils. Látum þessa samninga verða viðspyrnusamningana fyrir
    landbúnað á Íslandi og fyrir matvælaframleiðslu í heild.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að lokum langar mig til að beina sjónum að hafeldinu og
    stórþörungunum og segja einfaldlega: <ns:bjalla/> Ég hvet hæstv. ráðherra
    til dáða í þeirri vinnu. Það er gríðarlega mikilvægt að ná utan um
    regluverkið áður en farið er af stað, sama hvort það á við um
    leyfisveitingar, auðlindagjöld eða annað, allt þetta. <ns:bjalla/> Hérna
    er verk að vinna og ég hvet hæstv. ráðherra til dáða og heiti góðu
    samstarfi hvað það varðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>