<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T22:15:51" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 22:17:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T22:15:51">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og er
    þakklát fyrir hvatninguna varðandi hafeldið og þörungaræktina. Þetta er
    alveg rétt. Við þurfum að ná utan um starfsumhverfið og styrkjaumhverfið í
    landbúnaði til að efla hann og ná fram þessum markmiðum sem ég held við
    deilum öll. En mér finnst líka mikilvægt að við höfum það í huga að
    helmingur þess stuðnings sem fer í þessa atvinnugrein kemur úr vasa
    heimila landsins í formi tollverndar þannig að heimili landsins eru líka
    aðilar að þessu samtali að mínu mati. Við þurfum einhvern veginn að ná
    samkomulagi um það hvernig við tryggjum fæðuöryggi okkar, hvernig við
    eflum fæðuframleiðslu og hvernig við nýtum okkur akkúrat þessa
    atvinnugrein til að tryggja byggðafestu, hafa öflug bú á hverju strái, ef
    svo má segja. <ns:bjalla/> En það skiptir máli hvernig það er gert og það
    er verkefnið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>