<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T10:32:05" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 10:37:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T10:32:05">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er gaman að sjá andlit sem maður hefur
    ekki séð í allt sumar. Og við fögnum því auðvitað að þingveturinn sé að
    byrja. En það er skýr forgangsröðun í mínum málaflokki og vissulega aðhald
    líka eins og annars staðar í ríkisrekstrinum. Við erum að einfalda, við
    erum að sameina og við erum að reyna að nýta fjármuni betur um leið og við
    fjárfestum í háskólum, hugviti, gervigreind, fjölmiðlum, íslenskri tungu,
    listum og menningararfi. Ég ætla að byrja á háskólanum. Heildarútgjöld til
    háskólastigsins verða tæpir 76,6 milljarðar kr. á næsta ári. Þau hækka um
    rúma 3,2 milljarða milli ára að teknu tilliti til launa- og
    verðlagsbreytinga eða um 4,4%. Mikilvægara er þó að líta á kjarnann,
    háskóla- og rannsóknarstarfsemi. Þar verða fjárheimildir rúmir 70
    milljarðar og aukast um 750 millj. kr. umfram sömu breytingar.
    Ríkisstjórnin tekur þannig sérstaka ákvörðun um að setja 1,3 milljarða kr.
    til eflingar á háskólastiginu. Háskólarnir eru hluti af atvinnustefnu
    landsins, byggðastefnu, heilbrigðisþjónustu, menntakerfi og
    nýsköpunarumhverfi. Við ætlum að fjölga brautskráningum úr greinum þar sem
    samfélagið þarf sérstaklega á fólki að halda í raun- og tæknigreinum og
    einnig í heilbrigðisgreinum, kennslu og löggæslu. Við ætlum einnig að auka
    sveigjanleika með örnámi, raunfærnimati og auknu samstarfi háskóla.
    Háskólarnir taka þó líka þátt í þessu aðhaldi sem sett er á alla.
    Aðhaldskrafa háskóla- og rannsóknarstarfsemi nemur rúmum 1,3 milljörðum
    kr. Þar af eru 660 millj. kr. vegna þeirrar almennu stefnu að fækka
    stöðugildum hjá ríkinu um 1%. Þannig er verið að gera hvort tveggja, efla
    háskólastigið með nýrri forgangsröðun en um leið að gera kröfu um
    skilvirkari rekstur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá að nýsköpun, rannsóknum og þekkingargreinum. Við fyrstu sýn er
    breytingin þar mikil. Heildarútgjöld málefnasviðs 7 verða um 30,7
    milljarðar sem er um 10,5% lækkun milli ára en það er mikilvægt að skýra
    hvað liggur að baki því. Stærsti einstaki þátturinn er tímabundin 3,5
    milljarða lækkun nýrra fjárheimilda vegna þátttöku Íslands í rammaáætlun
    Evrópusambandsins. Ástæðan er sú að það eru ónýttar fjárheimildir frá
    fyrri árum sem verða nýttar árið 2027. Þessi lækkun mun því ekki hafa
    áhrif á skuldbindingar Íslands gagnvart þessari rammaáætlun. Á sama tíma
    hækkar kostnaður Íslands við þátttökuna sjálfa um rúmar 418 millj. kr.
    vegna breyttra forsendna. Áætlun um endurgreiðslu vegna rannsóknar- og
    þróunarkostnaðar fyrirtækja lækkar um rúma 1,7 milljarða í samræmi við
    uppfært mat Rannís á fjárþörfinni, þ.e. þessi tala byggist á mati Rannís á
    fjárþörfinni. Þetta er því mikilvægt dæmi um það hvernig breyting á
    fjárlagatölu jafngildir ekki sjálfkrafa stefnubreytingu eða minni mettun í
    nýsköpun. Það kemur bara aukning ef umsóknirnar verða umfram og úthlutanir
    verða umfram mat Rannís á þessari stundu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það fara 350 millj. kr. sérstaklega í gervigreind. Við höldum
    áfram að byggja upp reiknigetu og stafræna innviði, efla
    gervigreindarfærni fyrir samfélag og atvinnulíf. Á sviði fjölmiðla er
    breytingin mjög skýr, 600 millj. kr. hækkun frá fjárlögum 2027 eða um 8% á
    föstu verðlagi. Þar af leiðir hækkun á tekjuáætlun útvarpsgjaldsins um 330
    millj. kr., þar sem það er líka sérstaklega mikilvægt að framlag til
    einkarekinna fjölmiðla er aukið um 300 millj. kr. Við höldum áfram að
    innleiða aðgerðaáætlun um málefni fjölmiðla, styrkja fjölmiðlafrelsi og
    vinna að breytingum á ráðstöfun útvarpsgjaldsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Og þá að menningunni. Í safnamálum verða fjárheimildir 6,8
    milljarðar kr., 300 millj. kr. meira en í gildandi fjárlögum og
    sérstaklega er bætt við 189 millj. kr. til að styrkja lögbundin verkefni.
    Það er gert ráð fyrir 143 millj. kr. aðhaldskröfu á stofnanir
    málaflokksins. Það er ekki auðvelt en markmiðið er að nýta aukna samlegð,
    einfalda rekstur, þar sem það er hægt, og verja starfsemina. 300 millj.
    kr. er sérstaklega bætt við menningarsjóði og listamannalaun samkvæmt
    lögum og 150 millj. kr. eru til að efla íslenska tungu, sérstaklega með
    áherslu á börn og ungmenni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þetta fjárlagafrumvarp er ekki frumvarp þar sem
    allir fá allt sem þeir óska eftir. Það væri bæði óraunhæft og óábyrgt í
    núverandi stöðu ríkisfjármála en ég tel að á þessum málefnasviðum birtist
    hins vegar skýr stefna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>