<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T10:37:31" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 10:39:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T10:37:31">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hans
    framsögu í þessu máli. Í fjárlagafrumvarpinu segir að fjölga eigi
    brautskráningum á sviðum þar sem mönnunarþörf er fyrir hendi, oft talað um
    svokallaðar STEM-greinar. Vísindagreinar, tækni, verkfræði og stærðfræði
    eru þar undir. Þetta eru einmitt greinar sem PISA-prófið mælir og við
    höfum fengið nýlegar niðurstöður úr. Þetta eru greinar sem eru oft
    drifkraftur nýsköpunar, en það svið tilheyrir einmitt ráðuneyti hæstv.
    ráðherra. Það er skynsamlegt markmið að fjölga brautskráningum í þessum
    greinum og það er líka skynsamlegt að opinberir aðilar nýti fjármuni vel
    og fækkun stöðugilda getur verið leið til þess. En hvar er heildarsýnin?
    Við fjölgum ekki verkfræðingum og tæknimenntuðu fólki, stærðfræðingum eða
    sérfræðingum í raunvísindum með því einu að skrifa það inn í
    fjárlagafrumvarpið að fjölga eigi brautskráningum í STEM-greinum. Þeir
    nemendur verða ekki til við dyr háskólanna. Grunnurinn er lagður löngu
    fyrr. Raunar virðist ríkisstjórnin átta sig á þessu því að í frumvarpinu
    eru 380 milljónir ætlaðar til námsgagna í grunnskólum sem er sérstaklega
    beint til þessara greina, STEM-greinanna, nýsköpunargreinanna,
    vísindagreinanna. Á framhaldsskólastigi er síðan sagt að leggja eigi
    áherslu á greinar og fjölga brautskráningum nemenda í STEM-greinum í
    háskólunum. </ns:mgr>

    <ns:mgr>En hver er tengingin á milli þessara skólastiga? Er eitthvert
    samtal búið að fara á milli? Hefur hæstv. háskólaráðherra sest niður með
    mennta- og barnamálaráðherra og mótað samfellda áætlun til að gera þetta
    sem stendur í frumvarpinu? Og hver eru markmiðin? Hversu mikið á að fjölga
    brautskráningum og fyrir hvaða ár? Hyggst ráðherra hvetja til
    endurskoðunar á kennaranámi þar sem lenging í fimm ár virðist ekki hafa
    skilað sér í betri lesskilningi? Þetta eru þær spurningar sem ég vil
    leggja fyrir ráðherra að sinni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>