<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T10:42:04" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 10:43:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T10:42:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið.
    Skólakerfið er einn samhangandi vefur. Háskólinn er ekki eyland. Það eru
    aðeins þrír sólarhringar síðan við fengum PISA-niðurstöðurnar sem sýna
    gríðarlega alvarlega stöðu. PISA mælir lesskilning, stærðfræði og vísindi
    og við þurfum einmitt að fjölga kennurum á þeim vettvangi. En það sem slær
    mann sérstaklega er hversu fáir afburðafærir eru í STEM-hlutanum. Það
    virðist sem ríkisstjórnir Norðurlandanna skilji málið og alvarleikann,
    enda hafa verið haldnir fundir þar sem fleiri ráðherrar ríkisstjórnarinnar
    koma saman og eru að skipuleggja aðgerðaáætlanir inn í næstu ár. Þess sér
    ekki merki hjá ríkisstjórn Íslands. Hæstv. mennta- og barnamálaráðherra
    hefur einn sést á vettvangi. Aðrir hafa dregið sig í hlé og verið í leyni.
    </ns:mgr>

    <ns:mgr>Því langar mig að spyrja hæstv. háskólaráðherra: Hvað ætlar hann
    að gera með tilliti til þeirrar niðurstöðu sem við fengum núna á
    þriðjudaginn í sínum málaflokkum til að bæta þessa stöðu, þar sem hann
    hefur með kennaramenntun að gera?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>