<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T10:43:33" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 10:44:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T10:43:33">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég held áfram þar sem frá var horfið vegna
    þess að spurningarnar eru á sömu nótum og þetta er ágætissamtal. Það sem
    við erum að gera umfram það sem ég nefndi í fyrra andsvari mínu er að við
    höfum t.d. hrint af stað alþjóðlegri óháðri skoðun á kennaranámi á
    Íslandi. Þetta varðar fjóra háskóla: Háskóla Íslands, Háskólann í
    Reykjavík, Háskólann á Akureyri og Listaháskólann. Þetta er unnið í ágætu
    samstarfi við þau vegna þess að við þurfum að komast að því hvernig
    kennara við erum að búa til og hvort þeir þurfi að búa yfir annarri hæfni.
    Við erum með ýmis verkefni þar sem fólk t.d. á vinnumarkaði fer inn í
    grunnskóla og kynnir störf, þannig að það er ýmislegt hægt að gera svona
    frá degi til dags. En ég held að grunnurinn sé, og ég held að við séum
    sammála um það, að það þurfi að byrja fyrr að glæða áhuga ungra nemenda
    strax í barnaskóla á þessum STEM-greinum, á íslenskunni. Það þarf
    örugglega að leggja mikið meiri áherslu á fyrstu skólastigunum á
    kjarnafögin og byggja svo ofan á það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>