<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T10:44:48" skst="EBB" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 10:46:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T10:44:48">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hæstv.
    ráðherra kærlega fyrir framsöguna. Það er alveg rétt sem fram kemur í hans
    máli að það er svo sannarlega áskorun að greiða niður skuldir fyrri
    ríkisstjórna. En í þessu geta líka falist tækifæri og það er mikilvægt að
    skapa ný tækifæri og útfæra nýjar hugmyndir. Þess vegna fagna ég mjög því
    sem kemur fram í fjárlagafrumvarpinu varðandi m.a. nýsköpun í
    heilbrigðisþjónustu. Nýlega var viðtal við forstjóra Heilsuverndar í
    fjölmiðlum þar sem hann tók einmitt undir þessar hugmyndir varðandi
    nýsköpun í velferðarþjónustu og sér fyrir sér tækifæri, m.a. með
    gervigreind.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að varpa spurningu til ráðherra varðandi þessa þróun og
    hvernig hann sér fyrir sér þróun á þessu sviði varðandi gervigreindina og
    hvernig við getum nýtt okkur hana til að skapa ný tækifæri og eins líka
    til að leita leiða til að hagræða í okkar rekstri. Það er gríðarlega
    mikilvægt að sinna rannsóknum og efla þjónustu á því sviði og gera það í
    samstarfi við háskólana en ekki síður atvinnulífið. Við eigum gríðarlega
    mikið af sterkum og öflugum fyrirtækjum sem eru í rannsóknum. Ég er mjög
    upptekinn af velferðartækninni en vissulega eru þessi fyrirtæki á öðrum
    sviðum líka. Það væri áhugavert að heyra hvernig ráðherra sér fyrir sér
    einmitt ekki bara samstarf við háskólasamfélagið heldur einnig við
    atvinnulífið á þessu sviði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég kem frekar inn á önnur mál í síðari ræðu minni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>