<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T10:46:54" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 10:49:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T10:46:54">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Annað sannarlega mikilvægt mál og hér sannast
    að lítil þjóð á líka stundum sterka möguleika þegar kemur að miklum
    breytingum. Við eigum t.d. mjög góða gagnagrunna sem við erum að fjárfesta
    núna í að bæta. Við eigum verðmætar erfðaupplýsingar um nánast alla
    þjóðina sem geta komið okkur að gagni. Þarna erum við t.d. á
    gervigreindarsviðinu að leggja áherslu á, í samstarfi við Almannaróm,
    þetta risamállíkan okkar þar sem við munum hins vegar búa til málheildir á
    ákveðnum sviðum, heilbrigðissviðið er eitt af þeim, til þess að efla
    möguleika fólks til að þróa og búa til tækni. Þessu höfum við fylgt eftir,
    t.d. á síðasta ári með því að setja 400 millj. kr. inn í samstarfsverkefni
    við Kríu, Heilsu Kríu, þar sem við leggjum beinlínis áherslu á að það séu
    keyptar lausnir sem eru í þróun fyrir heilbrigðiskerfið.
    Heilbrigðisráðuneytið hefur á sama tíma búið til stafræna
    heilbrigðisstofu, getum við sagt, sem er í rauninni að aðstoða við þetta
    og er að tryggja að sú vara sem er verið að búa til henti í fyrsta lagi
    heilbrigðisstofnunum, sé það sem okkur vantar og að heilbrigðisstofnanir
    séu ekki of íhaldssamar og séu tilbúnar til að koma. Það er verið að reyna
    að byggja brýr og höggva niður múra. Við höfum t.d. líka fyrr á þessu ári
    átt samtal við Apple vegna þess að íslensk tækni þarf að vera inni í
    þessum helstu tæknitækjum sem við notum dagsdaglega. Dæmi um af hverju við
    erum að leggja áherslu á Apple er að Apple hefur þróað alveg ótrúlega
    magnaðar lausnir til að hjálpa fötluðu fólki sem getur oft ekki nýtt sér
    önnur tungumál en íslensku þannig að við viljum ryðja þeim hindrunum úr
    vegi. Tæknin á eftir að verða okkur til góðs eins og önnur og við þurfum
    að vara okkur á ýmsum öngum hennar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>