<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T10:49:12" skst="EBB" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 10:50:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T10:49:12">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir hans
    svar og hans innlegg í þetta. Mér er mjög hugleikin, eins og ég hef komið
    inn á, velferðartækni í heilbrigðisþjónustu. Mig langar að nefna í því
    sambandi tvö mikilvæg verkefni, annars vegar stórt og öflugt fyrirtæki sem
    staðsett er á Akureyri sem heitir Þula, og ég veit að ráðherra þekkir
    ágætlega, sem er að vinna að hugbúnaðarmálum og tæknilausnum í
    heilbrigðisgeiranum, og svo þennan ágætisklasa sem heitir Veltek og er
    einnig starfræktur fyrir norðan. Það væri ágætt að heyra aðeins dýpra frá
    ráðherranum varðandi það hvernig hann sér samstarf við svona
    aðila.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo fagna ég einnig líka áframhaldandi stuðningi við kvikmyndagerð
    og hljóðritun tónlistar, því það er líka gríðarlega mikilvægt verkefni sem
    við þurfum að standa við bakið á og síðan að sjálfsögðu, þar sem við
    deilum nú áhugamáli, stuðningi við söngnám.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>