<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T10:50:27" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 10:51:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T10:50:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Já, við munum birtast með heildarendurskoðun á
    umgjörð um kvikmyndir seinna í vetur og það skiptir gríðarlega miklu máli
    eins og hv. þingmaður kemur inn á. Þetta er mikilvæg
    atvinnugrein.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sama á auðvitað við um tónlistina og aðstoð við upptöku á
    tónlist. Já, við deilum áhuga á söng þó svo að hv. þingmaður sé eflaust
    betri söngvari en ég. Ég hef gaman af að hlusta og við erum t.d. núna í
    fyrsta skipti að fara með aukinn stuðning til KÓRÍS, sem er svona samstarf
    kóra á landinu, vegna þess að eitt er atvinnufólkið í músík, en hitt eru
    bara þessar tugþúsundir Íslendinga á öllum aldri sem eru að syngja saman í
    öllum byggðarlögum, sem skiptir máli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við fylgjumst vel með hvað þessi fyrirtæki eru að gera, Þula og
    önnur. Þau geta leyst ótrúlega mikið fyrir okkur. Við þurfum öll á mikilli
    þjónustu að halda síðustu 10–20 ár ævinnar og það er auðvitað bara
    ótrúlegur vöxtur á kostnaði við umönnun okkar síðustu árin þannig að við
    þurfum að nota þessa tækni <ns:bjalla/> og við fylgjumst vel með þessum
    fyrirtækjum og styðjum þau af bestu getu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>