<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T10:51:52" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 10:53:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T10:51:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir umfjöllun hans um
    þessi málefnasvið sem eru mörg hver auðvitað einhver þau allra
    mikilvægustu á sviði stjórnmálanna að mínu mati. Hér er af ýmsu að taka og
    vonandi fáum við tækifæri til að ræða hvað eina út frá ýmsum sjónarhornum.
    Fjölmiðlarnir eru auðvitað á forræði hæstv. ráðherra og þar er verið að
    bæta í útgjöld um nokkur hundruð milljónir, 8% aukning á meðan aðrir
    flokkar fá 5%. Einhverjir nefna 2,5% sem æskilega aukningu í takt við
    verðbólgumarkmiðin en 8% eru hér gefin. Það sendir ákveðin skilaboð um
    áherslu stjórnvalda að gefa í á sviði útgjalda til fjölmiðlunar. Mestallt
    fer eftir sem áður til Ríkisútvarpsins þar sem starfar núna vel á þriðja
    hundrað manns. Margt af því auðvitað ágætir blaðamenn, annað, já, í sumum
    tilvikum, pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera eða í raun og
    veru almenningi sem er í nauðungaráskrift að fyrirbærinu. Er það mat
    hæstv. ráðherra að það sé raunverulega ekki hægt að gera þá kröfu til
    Ríkisútvarpsins, t.d. sem og annarra stofnana, að hagræða í sínum rekstri,
    að skoða þessi hundruð manna sem þarna vinna og þau verkefni sem þau sinna
    og virkilega fara í kjölinn á því hvort ekki sé hægt, í takt við þróun
    samfélagsins og í takt við það að aðrir eru að herða sultarólina, að skoða
    hvort það sé ekki hægt að gera ákveðnar breytingar á verkefnum? Eða er
    þetta bara einfaldlega stefnan að gefa í, fulla ferð á sama tíma og
    einkamiðlar í samkeppni við ríkisbáknið deyja drottni sínum? Eru þetta
    ekki undarleg skilaboð?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>