<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T10:54:03" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 10:56:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T10:54:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er rétt að það er aukning í fjölmiðlun og
    auðvitað endurspeglar það áherslu ríkisstjórnarinnar vegna þess að við
    höfum aldrei lifað á tímum þar sem vandaðir, ritstýrðir og hlutlægir
    fjölmiðlar gegna stærra hlutverki þegar kemur t.d. að vernd lýðræðisins,
    svo ég verði nú bara dramatískur. Allir fjölmiðlar, bæði einkareknir
    fjölmiðlar og ríkisfjölmiðillinn, eru saman í baráttu við nýmiðlun af ýmsu
    tagi, við útflæði af auglýsingatekjum til samfélagsmiðla. Við munum leggja
    áherslu á það í nýjum þjónustusamningi, sem við erum að hefja vinnu við og
    tekur gildi 1. janúar 2027, að skilgreina hlutverk Ríkisútvarpsins, ekki
    sem samkeppnisaðila einstakra einkamiðla heldur sem hluta af sameiginlegri
    varðstöðu innlendrar ritstýrðrar fjölmiðlunar gagnvart umheiminum. Þetta
    eru öll lönd meira eða minna að glíma við líka. Þar mun alveg örugglega
    verða hnykkt á ýmsum hlutum og beint til Ríkisútvarpsins að nýta t.d.
    tækni og aðra kosti til þess einhvern veginn að hagræða í sínum
    rekstri.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég tek ekki undir orð hv. þingmanns að öðru leyti um dylgjur, vil
    ég kalla það, um einstaka starfsmenn Ríkisútvarpsins. Ég þekki þau ekki,
    nema bara stofnunina sem heild, ekki einstaklingana sem þar vinna. En það
    má minna á það að Ríkisútvarpið, ríkisfjölmiðillinn, nýtur gríðarlega
    mikils trausts, 65% trausts, sem er töluvert meira en í garð þessarar
    stofnunar, t.d. Traust er einfaldlega það mikilvægasta sem fjölmiðill
    hefur og þess vegna væri það mjög góð brýning til allra fjölmiðla,
    Ríkisútvarpsins og annarra, <ns:bjalla/> að vera með minnisblað uppi á
    vegg um að muna að það er besta markaðsátakið, að efla traustið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>