<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T10:56:29" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 10:57:59 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T10:56:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég á sjálfur að baki feril í fjölmiðlum. Ég
    klóra mér oft í kollinum yfir niðurstöðum traustsmælinga. Það eru ýmsar
    kenningar í fjölmiðlafræðunum um það hvað drífur fólk til að lýsa trausti
    til hinna ýmsu miðla. Sumir segja að það séu miðlarnir sem síst rugga
    bátnum sem fái traust, það séu miðlarnir sem hafi e.t.v. minni áhrif en
    aðrir miðlar sem fái þennan stimpil um traustið. Þetta með spurninguna um
    traustið í þessum könnunum til almennings — mér hefur stundum fundist alla
    vega tilefni til að gaumgæfa það betur hvað við eigum við þegar við svörum
    svona spurningum en það er kannski önnur saga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. ráðherra lýsti því að þetta sé þá áfram sýnin, að halda
    áfram að gefa í gagnvart RÚV og talar um þetta hlutverk gagnvart
    lýðræðinu. Ég hef bent á að ef mönnum væri alvara með það að aðkoma
    ríkisins að fjölmiðlum í landinu ætti að vera einhvers konar lýðræðislegt
    fyrirbæri þá myndu menn leyfa því að gerast á lýðræðislegum grunni, þ.e.
    að einstaklingar sem greiða þessa nauðungaráskrift til ríkisvaldsins
    <ns:bjalla/> fái að ráða einhverju um það hvert þeim fjármunum er
    ráðstafað, þ.e. til hvaða miðla en ekki allt á sama miðstýrða staðinn sem
    rekur ákveðna pólitík í mörgum málum. <ns:bjalla/> Hefur hæstv. ráðherra
    enn í hyggju að leyfa almenningi ekki að ráðstafa, þó ekki væri nema hluta
    þessa áskriftargjalds til ríkisins, til þeirra miðla sem þeir
    velja?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>