<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T10:58:10" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 10:59:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T10:58:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mér er kunnugt um að hv. þingmaður starfaði á
    fjölmiðlum og ég tók eftir honum þar fyrst og mig minnir meira að segja að
    ég hafi mætt í hlaðvarp til hans fyrir fjórum eða fimm árum. Ég veit að
    hann þekkir málaflokkinn og hann veit auðvitað alveg jafn vel og ég — þó
    að það sé alveg rétt að það getur vel verið að þeir sem sigla hægast
    ölduna hafi kannski einhverja forgjöf í traustsmælingum og þeir sem eru
    djarfir rannsóknarblaðamenn geri það ekki og það verða skiptar skoðanir um
    þá. Engu að síður skiptir traust alveg gríðarlega miklu máli. Kannski hef
    ég komið hlutunum eitthvað vitlaust út úr mér áðan. Það er ekkert verið að
    gefa í gagnvart Ríkisútvarpinu. Við erum hins vegar að gefa í gagnvart
    einkareknum fjölmiðlum. Ég hef hins vegar sagt það skýrt og stend við það
    að á minni vakt veikjum við ekki Ríkisútvarpið, sérstaklega ekki á þessum
    tímum sem við erum að glíma við í dag og ég spyr þá hluta
    stjórnarandstöðunnar sem hefur mikið talað um þetta: Hvar voruð þið? Hvað
    gerðuð þið? <ns:bjalla/> Hvenær tókuð þið Ríkisútvarpið af
    auglýsingamarkaði og hvenær minnkuðuð þið það?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>