<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T10:59:34" skst="JBÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:01:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T10:59:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. menningar-, nýsköpunar- og
    háskólaráðherra fyrir yfirferðina. Mig langar að beina sjónum mínum
    sérstaklega að nýsköpun og rannsóknum og því hvernig við getum nýtt nýja
    tækni til að bæta þjónustu við fólk. Við stöndum frammi fyrir miklum
    áskorunum í heilbrigðis- og velferðarkerfinu. Þjóðin er að eldast,
    eftirspurn eftir þjónustu eykst og víða er skortur á starfsfólki. Þar geta
    nýsköpun og gervigreind gegnt mikilvægu hlutverki, ekki eingöngu sem leið
    til að skapa ný tækifæri heldur einnig til að bæta þjónustu, auka
    skilvirkni og létta álagi af starfsfólki. Til þess að slík nýsköpun skili
    sér í raunverulegum umbótum skiptir máli að háskólar,
    heilbrigðisstofnanir, fyrirtæki og stjórnvöld vinni saman. Við eigum
    öflugt rannsókna- og háskólasamfélag og þar liggja mikil tækifæri til að
    koma rannsóknum og góðum hugmyndum hraðar í framkvæmd. Í þessu sambandi
    langar mig sérstaklega að nefna þjónustu við eldra fólk. Þar getur ný
    tækni skipt miklu máli, m.a. með lausnum sem geta gert fólki kleift að búa
    lengur heima.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig sér hann fyrir
    sér að nýsköpun, gervigreind og önnur ný tækni geti nýst til þess að bæta
    heilbrigðisþjónustu, létta álagi af starfsfólki og um leið styðja við
    lausnir sem gera eldra fólki kleift að búa lengur heima og auka öryggi og
    lífsgæði þess?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>