<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:01:26" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:03:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:01:26">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Á öllum peningum eru tvær hliðar og svo er
    líka með svona stórkostlega tækni eins og gervigreindina. Hún felur í sér
    alveg ótrúlega möguleika en hún felur líka í sér hættur sem við þurfum að
    passa og við þurfum að feta eitthvert einstigi þarna. Hér var nefndur áðan
    forstjóri hjúkrunarheimila sem hefur talað mikið fyrir velferðartækni og
    ég held að það sé alveg rétt að hún getur nýst alveg gríðarlega mikið til
    þess að létta álagi líka af starfsfólkinu vegna þess að þetta eru
    gríðarlega þung störf, að vinna sem umönnunaraðili. Það fer ekki bara
    betur með gamla fólkið á hjúkrunarheimilunum heldur líka starfsfólkið sem
    vinnur þar þannig að þar er auðvitað til mjög mikils að vinna. Það er
    alveg rétt hjá hv. þingmanni að okkur mun takast að gera fólki mögulega
    kleift að búa lengur heima og það felst alveg ótrúlegur aurasparnaður í
    því. Víða um heim er farið að nota tölvuna, tölvutæknina, skjái og
    gervigreindina til að vinna gegn einveru og öðru slíku. Þetta er allt mjög
    gott og við eigum að skoða þetta. En aftur að þessum tveimur hliðum. Það
    er alveg jafn mikilvægt að muna að það þarf að vera jafnvægi þarna á milli
    vegna þess að sem betur fer erum við mannskepnan algerlega háð því líka að
    eiga samskipti við aðra menn og mannleg nánd skiptir ekki síður máli núna
    en áður. Það eru ótal tækifæri til þess að gera þjónustuna ódýrari, gera
    hana betri, létta undir með umönnunaraðilunum, létta fyrst og fremst undir
    með auðvitað gamla fólkinu. En í þessu eins og öðru verðum við að gæta að
    þessu jafnvægi vegna þess að það kemur ekkert í staðinn fyrir manninn, sem
    betur fer.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>