<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T11:03:38" skst="JBÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:04:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:03:38">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. menningar-, nýsköpunar- og
    háskólaráðherra — þetta er svo langt orð — kærlega fyrir svörin. Að lokum
    langar mig að spyrja — nú veit ég að það var fyrir svona sjö, átta árum að
    Félag eldri borgara byrjaði að vera með tölvunámskeið sem breytti
    geysilega miklu fyrir þá sem þjónusta eldri borgara. En að lokum langar
    mig til að spyrja hæstv. ráðherra hvernig hann sjái fyrir sér að efla megi
    samstarf háskóla, heilbrigðisstofnana og íslenskra nýsköpunarfyrirtækja
    þannig að rannsóknir og góðar hugmyndir skili sér í raunverulegum lausnum
    og betri þjónustu fyrir almenning.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>