<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:04:40" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:05:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:04:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Já, nú erum við bæði, hv. þingmaður og ég,
    fullgildir meðlimir í Félagi eldri borgara eða a.m.k. gjaldgeng í þau
    samtök og ég hef auðvitað tekið eftir þessum tölvunámskeiðum. Ég áttaði
    mig reyndar á því fyrst þegar móðir mín fór að vaða á súðum á Facebook og
    stundum spurði ég mig hvort það hefði kannski verið betra að henni hefði
    verið kennt aðeins minna, en svo hefur hún smám saman náð tökum á þessu og
    þetta gefur henni bara mjög mikið. Við eigum, eins og ég nefndi í andsvari
    við hv. þm. Eirík Björn Björgvinsson, í miklu samstarfi milli háskóla og
    míns ráðuneytis í gegnum Heilsu Kríu sem er átak til þess að koma
    velferðartækni inn í skólana, í gegnum Stafræna heilsu, í gegnum áherslu
    okkar á háskólamenntun, í uppbyggingu okkar t.d. á Háskólanum á Akureyri
    þar sem við hyggjumst koma upp hermisetri sem bætir stöðu
    hjúkrunarfræðinema þar og fleira þannig að við eigum í mjög stóru og miklu
    samstarfi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>