<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T11:06:03" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:07:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:06:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hans ræðu hér.
    Hann kom skýrt inn á að það fá ekki alltaf allir allt sem þeir vilja og
    það hefur svolítið verið gangur lífsins, held ég, hjá okkur öllum. En þá
    skiptir forgangsröðun auðvitað líka gríðarlega miklu máli: hvernig við
    ráðstöfum fjármagninu og hvernig við skilgreinum líka árangurinn sem við
    viljum sjá af þessu fjármagni sem við erum einmitt að forgangsraða til
    ákveðinna verkefna. Ráðherra kom inn á það áðan að hann vildi fjölga
    útskrifuðum nemendum frá háskólunum. Ég tek heils hugar undir það með
    honum, sérstaklega í ljósi þess að við vorum að ræða menntamál hér í gær.
    Hv. þm. Jón Pétur Zimsen kom líka inn á það hérna áðan í fyrirspurn til
    ráðherrans, í andsvari, varðandi menntaða kennara, því að nú sjáum við að
    stór hluti kennara er að komast á aldur og er að fara út úr kennslu eðli
    málsins samkvæmt, en á móti er ekki nægilega stórt hlutfall nýrra kennara
    að koma inn. Þetta er mikið áhyggjuefni í ljósi þeirrar umræðu sem hefur
    verið núna í kringum PISA og fleira, hvernig við ætlum að takast á við
    þetta. Í gegnum tíðina hefur verið farið í eitthvert skammtímaátak, en það
    er ljóst að það þarf að fara í langtímaátak. Mig langar að spyrja í ljósi
    þessa: Er eitthvert eyrnamerkt fjármagn sérstaklega til þess að fjölga
    kennurum til framtíðar? Hvað er það mikið, ef svo er? Hvað á þá að fjölga
    útskrifuðum kennurum mikið? Hvernig kemur það fram í markmiðum og
    mælikvörðum? Ég var að reyna að finna út úr þessu á heimasíðu
    ráðuneytisins en ég sé það ekki.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>