<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:07:57" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:10:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:07:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Já, þetta er alveg rétt hjá hv. þingmanni;
    forgangsröðun og skilgreining á árangri eru auðvitað alveg lykilatriði,
    ekki síst þegar fé er í rauninni alltaf af skornum skammti. Það kemur líka
    fram hjá hv. þingmanni að við erum sammála um að það þurfi að útskrifa
    fleiri nemendur úr framhaldsskólum, t.d. í þessum mikilvægu STEM-greinum.
    Við erum að mennta mjög marga kennara. Að hluta til er vandamálið að við
    erum að mennta kennara sem vinna svo ekki við kennslu, þannig að það er
    ekki nóg að fjölga bara þar. Reyndar sýndi skýrsla, sem við eigum inni á
    okkar borði, eða minnisblað, mig minnir að OECD hafi meira að segja tekið
    undir það, að þessi aðgerð sem farið var í fyrir fjórum, fimm árum hafi
    ekki skilað því sem til var ætlast og var ekki ráðlagt að fara þá leið.
    </ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég held að þetta sé samspil margra þátta. Í fyrsta lagi þarf að
    gera menntun kennara góða og það þarf að bæta það sem upp á vantar þar,
    alveg örugglega að fjölga kennurum sem eru sérmenntaðir í að kenna þessar
    greinar sem við viljum svo gjarnan leggja áherslu á, eins og lestur,
    stærðfræði og annað. En við þurfum að bæta starfsumhverfi þeirra og það er
    hægt að gera á margvíslegan hátt. Laun hafa verið nefnd, virðing fyrir
    stéttinni og starfsaðstæður inni í skólunum. Allt þetta þarf að koma til.
    En ég bind a.m.k. miklar vonir við að þessi úttekt sem verið er að gera á
    kennaranámi geti orðið okkur leiðarljós til næstu skrefa vegna þess að það
    er fyrst og fremst það sem við þurfum, að þeir kennarar sem við menntum
    njóti sín í kennslunni, séu mjög vel hæfir til að kenna, sem þeir eru
    auðvitað allflestir, og að þeir haldist í kennslu og sjái sér hag í því að
    vinna við það sem þeir menntuðu sig til. Það er kannski raunverulega stóra
    vandamálið í dag.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>