<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T11:10:17" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:11:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:10:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa yfirferð. Ég get
    verið sammála honum í mörgu en hann svaraði mér samt sem áður ekki hvort
    það væri eitthvert eyrnamerkt fjármagn til að útskrifa fleiri kennara þar
    sem það er eitt af markmiðunum. Það væri ágætt að fá að vita það. Eins kom
    hann inn á það að við værum að mennta marga kennara. Hvað eru margir
    kennarar þá að útskrifast? Hæstv. ráðherra hlýtur að hafa upplýsingar um
    það. Og hversu hátt hlutfall þeirra er að skila sér í kennslu, fyrst hann
    segir að það séu ekki nægilega margir að skila sér í kennslu? Ég held að
    það sé líka afar mikilvægt upp á framhald umræðunnar að fá þessar tölur,
    því að ég tek alveg undir að það er mikilvægt að fara í úttekt á
    kennaranámi. En í því ljósi langar mig að spyrja, af því að hæstv. mennta-
    og barnamálaráðherra lét aðeins að því liggja að það ætti þá kannski að
    breyta leyfisbréfunum eða lengd námstímans. Kannski er vinnan ekki komin
    það langt núna hjá ráðuneytinu en mig langar til að spyrja hvort það sé
    eitthvað til umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>