<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:11:26" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:12:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:11:26">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þannig að það sé nú alveg skýrt: Leyfisbréfin
    eru ekki á mínu borði og það er réttast að spyrja bara viðkomandi ráðherra
    að því. Ég var ekki að láta liggja að neinu öðru en því sem hefur mikið
    verið talað um og líka innan kennaradeildar og menntavísindasviðs: Tölur
    sýna að okkur skortir kennara í þessum ákveðnu fögum. Ég held kannski að á
    fyrstu stigum grunnskóla þurfi kennari fyrst og fremst bara að vera
    áreiðanleg og góð manneskja sem hefur hæfileika til að ná til barnanna, en
    síðan þegar ofar dregur þá þarftu kannski að fara að mennta kennara
    sérstaklega í nákvæmlega því sem verið er að kenna. Ég er ekki með tölu um
    fjöldann en við erum að útskrifa nægilega marga kennara. En það þarf að
    halda þeim í þessu starfi og ég skal útvega þessar tölur, það er alveg
    sjálfsagt mál, og koma þeim til þingmanns. Það er eyrnamerkt fjármagn til
    að fjölga í ýmsum greinum, sem ég kom inn á áðan, þar með talið kennurum,
    og það er gert í gegnum reiknilíkan háskóla.<!--"... koma þeim til ráðherra", segir hann. Held að hann hljóti að meina þingmann.--></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>