<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T11:12:50" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:15:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:12:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Já, þetta er áhugaverð umræða sem á sér stað
    hérna og mig langar að stinga mér aðeins inn á sama stað og annar
    þingmaður hefur gert hérna og ræða um fjölmiðlaumhverfið. Það var
    gríðarlegt högg, svo ekki sé meira sagt, þegar Sýn ákvað að hætta nú fyrir
    skemmstu sjónvarpsfréttaútsendingum sínum. Það kom kannski ekki alveg á
    óvart því að við munum eftir því síðastliðinn vetur þegar hæstv. ráðherra
    kynnti í fjármálaáætlun og aðgerðaáætlun um fjölmiðla hvernig brugðist
    yrði við þessari gríðarlega erfiðu stöðu sem ríkt hefur á
    fjölmiðlamarkaði. Samt sem áður kom fram eftir þær tillögur mjög hörð
    gagnrýni frá stærstu fjölmiðlum þessa lands á þær fyrirætlanir sem þar
    voru lagðar fram, mjög hörð gagnrýni og ekki síst frá Sýn, og ég vil kalla
    það neyðaróp sem barst hérna fyrr á árinu. Nú erum við komin á þann stað
    að ríkið eitt gínir yfir þessum þætti fjölmiðlanna, er einrátt á þessum
    markaði, og við erum komin í hóp með nokkrum einræðisríkjum þar sem aðeins
    ríkið sinnir sjónvarpsfréttaþjónustu. Það getur vart verið hlutverk
    ríkisins að skekkja samkeppnina eins og hér um ræðir og eins og við
    þekkjum og kæfa í raun sjálfstæðan rekstur. Og ég vil ekki fá þau viðbrögð
    frá hæstv. ráðherra að þeirri spurningu sé varpað fram: Af hverju var
    þetta ekki gert fyrr? Já, það er alveg hægt að spyrja sig að því.
    Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki staðið í vegi fyrir því. Það hefur ekki
    verið þingmeirihluti fyrir því, hvorki í tíð fyrri ríkisstjórnar né
    síðastliðið haust <ns:bjalla/> þegar frumvarpið var lagt fram. En mig
    langar til að fá viðbrögð frá hæstv. ráðherra um hvort afstaðan til
    stöðunnar á þessum markaði <ns:bjalla/> hafi eitthvað breyst eftir að
    fréttastofa Sýnar lagði upp laupana í sjónvarpi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>