<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:15:25" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:17:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:15:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hv. þingmaður segir hvorki mér né öðrum
    þingmönnum hér inni hvað þeir segja í pontu. Það gerum við bara sjálf og
    ákváðum sjálf. Og af því að hv. þingmaður rifjaði upp fyrri ummæli sín um
    einræðisstjórnir og Norður-Kóreu þá held ég að hv. þingmaður ætti aðeins
    að átta sig á því hvað felst í þeim orðum. Í Norður-Kóreu snýst þetta ekki
    bara um að það sé einn miðill á markaði heldur snýst þetta um með hvaða
    hætti sá miðill fær leyfi til að matreiða upplýsingar. Stjórnvöld á
    Íslandi hafa ekki, hvorki nú eða fyrr mér vitanlega, bein afskipti af
    fréttamati og fréttaflutningi fjölmiðlanna og heldur ekki Ríkisútvarpsins,
    svo það sé á hreinu. Það er þetta hlutlæga hlutverk þeirra sem gerir það
    að verkum að þau njóta þrátt fyrir allt nokkuð mikils trausts hjá
    almenningi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þegar við kynntum aðgerðaáætlun í desember síðastliðnum, og ég bið
    hv. þingmenn bara að fletta því upp af því að þetta er allt aðgengilegt í
    hinum stafræna heimi, kom forstjóri Sýnar og rakkaði einmitt ekki niður
    tillögurnar heldur taldi að það væri margt í þeim ágætt. Auðvitað var
    ýmislegt sem þau hefðu viljað hafa öðruvísi. Það hefur alveg verið rætt,
    þar eflaust og víðar, að það væri mikilvægt að það væri einn stór styrktur
    einkaaðili sem sinnti almannaþjónustu í landinu. Norðmenn fóru þá leið en
    þeir buðu það auðvitað út á Evrópska efnahagssvæðinu og sama hefðum við
    þurft að gera. Þannig að fyrir utan hversu mikla fjármuni það kostaði þá
    hefðum við alveg eins getað fengið einhvern fjölmiðil frá útlöndum, eins
    og danska fyrirtækið TV 2 sem starfar sem almannaþjónustufyrirtæki í
    Noregi og er bara alveg ágætt. Við fórum þess í stað þá leið að bæta við
    300 millj. kr. potti fyrir þau fyrirtæki sem búa yfir stærð og getu til að
    sinna ásamt Ríkisútvarpinu þessu almannaþjónustuhlutverki, <ns:bjalla/>
    sem geta sinnt kosningaumfjöllun, geta starfað á landsvísu, geta verið á
    vöktum allan sólarhringinn o.s.frv., og við munum auðvitað hrinda þessu í
    framkvæmd.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>