<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:19:21" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:20:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:19:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Já, guð minn almáttugur. Ég held að það sé
    alltaf hollt að skoða hluti og greina og því betri og ríkari gögn sem við
    höfum, þeim mun líklegra er að við hröpum að réttum aðgerðum. Þetta er
    sannarlega stórt mál og við þurfum meiri tíma og ég fagna því auðvitað ef
    hv. þingmaður er að bjóða upp á meira svona samtal í þingsalnum. Við erum
    bara að horfa á þá stöðu að það er ekki bara það að auglýsingatekjur hjá
    einkamiðlunum hafi verið að minnka heldur líka hjá RÚV, vegna þess að það
    hefur verið mikil leitni úr landi. Þetta eru allar þjóðir í kringum okkur
    líka að reyna að glíma við. OECD reyndi að koma á samræmdri skattalöggjöf
    hjá sem flestum löndum en Bandaríkin drógu sig út úr því og tennurnar
    svona duttu úr því verkefni. Enginn hefur treyst sér til að ráðast gegn
    þessum tæknirisum þannig að þetta er erfitt mál. En, já, ég held að það sé
    gott að fá þessi gögn og skoða þau. Við getum líka auðvitað notað gögn frá
    öðrum löndum og við í ráðuneytinu höfum gögn frá Frakklandi, Spáni og
    Lettlandi þar sem þessi leið sem hv. þingmaður boðaði var farin og kemur
    ekkert sérstaklega vel út.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>