<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T11:20:44" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:22:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:20:44">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil núna í framhaldi af síðustu umræðu
    aðeins venda kvæði mínu í kross og víkja að innlendri
    kvikmyndaframleiðslu. Nú er það þannig að kvikmyndasjóðir hafa verið að
    lækka í framlögum og eru svo frystir, ef ég skil upplýsingarnar í
    fjárlögum rétt, til lengri tíma og til framtíðar. Þetta er niðurstaða sem
    við komumst að í skugga töluverðrar umræðu um áhyggjur greinarinnar af
    stöðunni hérna innan lands, að framlögin hafa verið að lækka til
    Kvikmyndasjóðs.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er mjög hart í ári. Ég held að það sé væg leið til að lýsa
    hlutunum miðað við þær greinar og þá umfjöllun sem maður hefur séð. Við
    erum í töluvert auknum mæli, ef ég skil gögnin rétt, að veita fjármögnun
    til t.d. endurgreiðslna til erlendra verkefna á sama tíma og innlenda
    framleiðslan er auðvitað í ákveðinni samkeppni við þessi erlendu verkefni.
    Það er þetta jafnvægi á milli innlendu áherslnanna, að við séum í
    raunverulegri íslenskri kvikmyndaframleiðslu, á móti því að vera að reyna
    að laða að erlend verkefni, sem er sjálfstætt og gott markmið út af fyrir
    sig og gerir auðvitað ýmislegt fyrir bransann, en þessi innlendi þáttur er
    eitthvað sem menn hafa miklar áhyggjur af.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil fá viðbrögð hæstv. ráðherra við þessari gífurlega neikvæðu
    umræðu meðal kvikmyndagerðarmanna um ástandið og ég vil spyrja hvort það
    sé nokkuð eðlilegt skref að fara, að mati hæstv. ráðherra, í þessa
    frystingu útgjalda til lengri tíma í kvikmyndasjóðnum. Svo í framhaldinu
    vil ég spyrja: Hvaða leiðir sér hæstv. ráðherra í að efla nýliðun hérna og
    tryggja hagsmuni þessarar framleiðslu til lengri tíma?</ns:mgr>

    <ns:mgr/>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>