<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:22:40" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:24:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:22:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég held að það sé afar mikilvægt hvernig hv.
    þingmaður orðar þetta nákvæmlega, þetta samspil. Þetta er nefnilega
    jafnvægi milli frumsköpunar innan lands og erlendra verkefna. Við getum
    ekki alveg horft fram hjá því að stóru erlendu verkefnin hafa líka búið
    til svona innviði fyrir kvikmyndagerð í landinu: kvikmyndaver, mikið af
    tökuvélum, mikla þekkingu, skapað heilsársstörf og annað. En annað má ekki
    kæfa hitt og við munum alveg örugglega leitast við í þessari endurskoðun,
    sem við boðum bara strax eftir áramót, að svara því og njóta liðsinnis
    þingsins og geirans við það. Þetta er einstigi. Lögin eru 25, 26 ára gömul
    og margbætt og þannig flíkur eiga stundum bara að fara í einhverjar
    endurvinnsluverksmiðjur og nýjar þurfa að koma til.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi Kvikmyndasjóðinn er það líka mál sem ég deili áhyggjum
    af. Hann hefur staðið í stað. Hann stendur í stað núna að frádregnu
    tímabundnu fjármagni sem kom inn í hann í fyrra, 50 milljónum, einhverju
    svoleiðis. Hann þarf til framtíðar, held ég, að styrkja vegna þess að hann
    er það sem getur helst nýst á fyrstu skrefum fyrir þessa íslensku
    frumsköpun. Um það erum við hv. þingmaður og geirinn sammála, held ég, og
    það er verkefni sem við þurfum að vinna að saman. Á sínum tíma skilst mér
    að líka hafi verið gefið loforð um sérstakan sjónvarpssjóð fyrir þáttagerð
    og annað slíkt og það eru bara rosalega brýn verkefni sem við þurfum að
    taka á. En ég tek undir að sá sjóður þarf að stækka til framtíðar. Það
    gerist ekki á næsta ári. En ég vil gjarnan eiga samtal við greinina,
    fjármálaráðuneytið og aðra sem koma að þessu til að það geti
    gerst.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>