<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T11:24:37" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:25:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:24:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Maður hefur ekki mikinn tíma hérna í síðustu
    spurningu til hæstv. ráðherra en ég vildi kannski, ef maður kemur orðum að
    því í stuttu máli, spyrja út í háskólana og fjármögnun þeirra. Þar var
    gerð sú breyting á lögum hér á síðasta þingi að til stendur að taka
    skólagjöld, eiginleg skólagjöld, af nemendum sem hingað koma utan EES. Það
    var töluverð umræða um það í þinginu með hvaða hætti það mætti hlífa
    greinum sem stjórnvöld hefðu áhuga á að hlífa við þessari breytingu en á
    línuna á þetta að ganga. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi
    einhverjar upplýsingar um það með hvaða hætti þetta verður útfært á vegum
    háskólanna, hvort menn sjái þegar að umsóknum sé farið að fækka, vegna
    þess að þetta var auðvitað gert til að bregðast við ákveðinni misnotkun í
    kerfinu að mínu mati. Hvernig verður þetta og mun hljótast eitthvert
    fjármagn inn í háskólana fari menn að borga skólagjöld í stórum stíl eða
    koma menn út á núlli? Það er spurningin: Hvernig horfir þetta við
    ráðuneytinu, hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>