<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:25:54" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:26:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:25:54">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hvort háskólarnir muni koma út á núlli eða
    hvort það eykst eitthvað í þá, það verður bara að koma í ljós hver þróunin
    verður. Þetta er eðlilegt skref sem hin Norðurlöndin eru öll búin að
    stíga. Reynslan þar er að það fækkar mjög mikið fyrstu eitt, tvö, þrjú
    árin og síðan fjölgar aftur. Ef sú fjölgun skilar sér aftur hér eins og
    þar mun þetta færa skólunum auknar tekjur. Varðandi það hverjir munu ekki
    falla undir þessi lög, af því að nú eru það bara þjóðir innan EES plús
    Grænland og Færeyjar, þá verða það hópar sem standa viðkvæmir fyrir. Það
    verða hópar sem hér hafa nú þegar dvalarleyfi. Það verða örugglega hópar
    sem tengjast með einhverjum hætti þróunarsamvinnu Íslands. Það verða
    örugglega hópar sem við viljum fá hingað, afburðanemendur í doktorsnámi og
    öðru slíku. En við munum líka gefa skólunum að einhverju leyti frelsi með
    því að búa til einhvers konar pott og kvóta fyrir þá þannig að þeir geti
    valið sér sína nemendur sem verða undanþegnir þessu og það verður útfært
    núna á næstu dögum og vikum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>