<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:28:04" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:30:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:28:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er hárrétt sem hv. þingmaður sagði, að
    munurinn á þessum fjármunum sem koma inn í háskólana og því sem þeim er
    gert að sýna aðhald er ekki upp á margar krónur. En þá skulum við muna það
    bara almennt í ríkisrekstri og rekstri sveitarfélaga, af því að ég veit að
    hv. þingmaður hefur líka starfað á þeim vettvangi, að aðhald getur líka
    bara skipt töluverðu máli til að halda stofnunum og fyrirtækjum á tánum
    þannig að þau séu alltaf að leita allra leiða til að gera hlutina með
    skilvirkari hætti. Háskólarnir hér munu auðvitað lúta sömu kröfu um aðhald
    og flestir aðrir og ég treysti þeim ágætlega til þess.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil þó fullyrða að í þessum fjárlögum, miðað við metnaðarfull
    áform um að skila hallalausum fjárlögum, hafa háskólarnir verið nokkuð vel
    varðir og ég myndi segja að þetta væri ákveðinn varnarsigur fyrir þá. Við
    höfum líka í ráðuneytinu okkar ýmis verkfæri og í undirbúningi eru ýmsar
    aðgerðir til að styðja ákveðna hluti háskólans sem við viljum sjá
    styrkjast og það má ekki gleyma því að háskólinn er búinn til fyrir
    samfélagið en ekki öfugt. Ég held að rektorarnir og þeir sem starfa innan
    háskólanna skilji þetta og ég held að við munum taka þetta verkefni
    alvarlega og sinna því af metnaði. Það er auðvitað alltaf hægt að gera
    hluti aðeins betur í dag en í gær. Þessir nýju fjármunir sem koma inn að
    því gefnu að þeir sjái sóknarfæri í að sýna þetta aðhald bæta þá stöðu
    þeirra.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>