<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T11:30:07" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:30:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:30:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir en hann svaraði ekki
    spurningunni um hver væri nettóefling háskólanna eftir að tekið hefur
    verið tillit til aðhaldsins. Hann kom inn á aðhaldið, svolítið mikið, og
    ég skil vel að við getum alltaf nýtt fjármunina betur sem eru í kerfinu og
    eigum alltaf að vera að velta við öllum mögulegum steinum hvað það varðar.
    En hver er nettóefling háskólanna? Hér er sérstaklega tekið fram að það
    eigi að efla háskólana. Það væri kannski áhugavert að fá það. En síðan eru
    líka 350 millj. kr. færðar til nýsköpunar með sérstaka áherslu á
    gervigreind. Hvaða tilteknu verkefni eru þetta sem verða fjármögnuð fyrir
    þetta fjármagn? Hver á að fjármagna þau og hvaða mælikvarðar verða notaðir
    til að meta árangurinn?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>