<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:31:09" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:32:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:31:09">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ef menn vilja gefa sér það að háskólarnir muni
    ekki ná neinum árangri í neinu aðhaldi þá er staðan óbreytt en taki menn
    það verkefni alvarlega og takist að gera reksturinn betri og skilvirkari
    þá kemur þetta aukna fjármagn til viðbótar. Þessar 350 milljónir sem við
    hugsum til gervigreindar — sem er rosalega mikilvægt og þetta þyrfti
    eflaust að vera meira — við erum að gera ráð fyrir að 30% renni til
    uppbyggingar samfélagslegrar reiknigetu fyrir almenning, fyrirtækin og
    háskólann, tæplega 30% renni til þróunar reiknilíkans, íslensks mállíkans
    og annarra hluta samkvæmt aðgerðaáætlun um gervigreind, 20% til
    uppbyggingar þekkingar almennings þannig að allir geti og enginn verði
    skilinn eftir í þessari tækni, rúmlega 10% til íslenskra þjálfunargagna og
    tæplega 10% til miðstöðvar gervigreindar og máltækni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>