<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:32:30" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:37:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:32:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr> Virðulegi forseti. Eitt mikilvægasta verkefni ríkisstjórnarinnar
    er að koma böndum á ríkisútgjöld. Í því skyni kynnti ríkisstjórnin í
    vikunni fyrstu hallalausu fjárlögin í langan tíma. Vinna við fjárlög árið
    2027 markast af þessu. Við þurfum víða að sýna aðhald og gera ráðstafanir
    til að halda okkur innan ramma fjárlaga. Á mörgum mikilvægum málefnasviðum
    njótum við þess á hinn bóginn að fjárveitingar til málaflokka voru
    hækkaðar verulega í síðustu fjárlögum. Þar má ekki síst telja framkvæmdir
    vegna vega og viðhalds á vegum. Í frumvarpi til fjárlaga 2027 er gert ráð
    fyrir að fjárheimildir á málefnasviðum ráðuneytisins nemi tæpum 15,3
    milljörðum kr. sem er lítils háttar lækkun frá fyrra ári. Árið áður
    hækkuðu framlög ríflega á milli ára eða um 12,15%.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Verkefni innviðaráðuneytisins eru á tveimur málefnasviðum, 8 og
    11, og eru eftirfarandi: Málefnasvið 8, sveitarfélög og byggðamál. Til
    þeirra teljast m.a. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, Byggðastofnun,
    byggðaáætlun og sóknaráætlun landshluta. Í heildina nema framlög til þessa
    málefnasviðs um 41,1 milljarði kr. Framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
    nema ríflega 39 milljörðum kr. og aukast um 5,8% á milli ára. Nýlegar
    breytingar á sjóðnum hafa reynst afar vel en markmiðið var að framlög úr
    sjóðnum, sem eru mikilvægasta tekjulind sveitarfélaga, yrðu réttlátari og
    markvissari. Fjárveitingar til byggðamála munu nema tæplega 1,7 milljörðum
    kr. Í vetur mun ég leggja fram þingsályktunartillögu um nýja byggðaáætlun
    og hlakka ég mikið til að ræða málefni byggðanna í þinginu nú í vetur.
    Undir málefnasvið 11 falla samgöngur og fjarskipti. Fjárheimildir
    málefnasviðs samgangna og fjarskipta að meðtöldum rekstrartekjum nema
    ríflega 74 milljörðum kr. Langstærstur hluti fer til samgöngumála eða
    tæplega 71,1 milljarður kr. en framlög til fjarskipta, póst- og
    netöryggismála nema 1.755 millj. kr. Loks nema fjárheimildir stjórnsýslu
    innviðaráðuneytisins liðlega 1.300 milljónum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Framlög til samgöngu- og fjarskiptamála lækka um 3,2 milljarða kr.
    að raunvirði frá fjárlögum fyrra árs. Skýrist lækkunin fyrst og fremst af
    tímabundnum fjárheimildum sem falla niður, m.a. til vegagerðar við
    Hvammsvirkjun. Þá er lagt til að framlög til Betri samgangna lækki
    tímabundið um 2 milljarða kr. sem koma inn síðar. Samhliða nýframkvæmdum
    verður áfram áhersla á viðhald vega. Í samræmi við stefnu ríkisstjórnar
    eru framlög til vegakerfisins aukin um 1,6 milljarða kr. Einnig er lagt
    til að styrkir til almenningssamgangna á landsbyggðinni hækki um tæplega 1
    milljarð kr.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Eins og fram kom í upphafi ræðu minnar hafa
    framlög til framkvæmda og viðhalds á vegakerfinu verið stóraukin frá því
    að ríkisstjórnin tók við og verður lögð áhersla á áframhaldandi viðhald á
    vegakerfinu til að vinna á viðhaldsskuldinni. Þetta er í samræmi við
    stefnu ríkisstjórnarinnar um að auka fjárfestingu í samgöngum og hefja
    kraftmiklar framkvæmdir samfélaginu til heilla. Við styðjum einnig við
    nýja samgönguáætlun fyrir tímabilið 2026–2040 sem Alþingi samþykkti
    síðastliðið vor. Stofnun innviðafélags um fjármögnun mikilvægra
    samgöngumannvirkja mun síðan styðja við markmið okkar um að flýta fyrir
    þjóðhagslega mikilvægum samgönguframkvæmdum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Framlög til þjónustu á vegum voru aukin til muna í fjárlögum fyrir
    yfirstandandi ár og um leið var þjónustustig vetrarþjónustu varið. Að
    óbreyttu hefði þurft að skerða vetrarþjónustu verulega til að koma í veg
    fyrir halla. Það er markmið þessarar ríkisstjórnar að efla byggðir um land
    allt, jafnt á landsbyggðinni sem og á höfuðborgarsvæðinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>