<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T11:37:36" skst="NTF" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:39:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:37:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans yfirferð. Það eru
    kannski fjórir, fimm punktar og það þarf stutt svör, þetta er stuttur
    tími. Mig langar að byrja á nýrri flugstöð á Reykjavíkurflugvelli. Nú
    blása nýir vindar um höfuðborgina, þar er nýr meiri hluti eftir
    sveitarstjórnarkosningar í vor og búið er að breyta raunverulega stöðunni
    gagnvart því að völlurinn standi, það er ljóst að hann verður a.m.k. til
    2040. Ég veit að hæstv. ráðherra hefur áhuga á að byggja flugstöð í
    Reykjavík þannig að það væri áhugavert að fá fram hvernig það mál
    stendur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo vil ég spyrja hvort það séu fyrirhugaðar einhverjar breytingar
    varðandi Loftbrúna. Hæstv. ráðherra hefur talað um að breyta henni og
    fyrir um ári síðan, tæpu ári, kom umræða um að breyta stuðningnum og fara
    mögulega yfir í krónutölu. Það væri ágætt að heyra hvernig það mál
    stendur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá eru það framkvæmdir á Egilsstaðaflugvelli. Ég vona að þær byrji
    núna í haust, varaflugvallargjaldið verði nýtt í þær framkvæmdir, ég spyr
    hvort það sé ekki allt á góðri leið, framkvæmdirnar við hina svokölluðu
    lúppu á norðurenda flugbrautarinnar þar sem er mikilvægt fyrir vægi
    Egilsstaðaflugvallar sem varaflugvallar. Svo vil ég kannski koma líka inn
    á það að það hefur heyrst að það sé talað um að fækka flugferðum um þennan
    hring frá Akureyri til Vopnafjarðar, Þórshafnar og endað aftur á Akureyri,
    það eigi að fækka þeim ferðum niður í þrjár ferðir á viku í staðinn fyrir
    að þær séu fimm. Það væri ágætt að fá stöðu þess máls. Það eru þessir
    fjórir punktar núna og það þurfa að vera stutt svör ef það á að svara þeim
    á tveim mínútum og reyna að komast yfir punktana.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>