<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:39:47" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:41:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:39:47">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina.
    Varðandi flugstöðina í Reykjavík þá er gert ráð fyrir að leitað verði til
    einkaaðila varðandi fjármögnun og framkvæmd flugstöðvarinnar. Ljóst er að
    ýmsir hagsmunaaðilar eru í málinu; Isavia og Icelandair, sem eiga
    núverandi stöð sem var byggð 1946 og er svo sannarlega komin til ára
    sinna, og aðrir flugrekendur ásamt Reykjavíkurborg. Ráðuneytið mun vinna
    að því að koma þessu máli áfram í samræmi við samgönguáætlun og í
    áætluninni er gert ráð fyrir að fyrirkomulagið muni verða einhvers konar
    framlög frá ríkinu í formi leigu- og þjónustugjalda. Boltinn er svolítið
    hjá Isavia núna en ráðuneytið mun hafa samband við Isavia til að við getum
    stillt saman strengi og ég vonast til þess að viðræður geti hafist sem
    allra fyrst til undirbúnings.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi Loftbrúna þá hafa fjárheimildir til hennar verið um 600
    millj. kr., voru það á síðastliðnu ári. Heildarkostnaður verkefnisins
    hefur hins vegar verið meiri á árunum 2023–2025 og við erum að skoða það
    að fara úr 40% styrk eða greiðslu á flugmiðum yfir í fasta krónutölu og ég
    geri ráð fyrir að það verði fyrr en síðar hvað það varðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi framkvæmdir á Egilsstaðaflugvelli þá eru þær á
    samgönguáætlun og ég á ekki von á því að það verði eitthvað dregið þar úr
    og varðandi Vopnafjarðarflugið þá minnir mig að það sé ein ferð á viku sem
    það minnkar, ég er bara ekki alveg með það á hreinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>