<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:42:57" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:44:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:42:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Varðandi flugstöðina í Reykjavík þá er ég svo
    innilega sammála því að það sé gríðarlega mikilvægt verkefni og ég hef
    þegar látið málefni Reykjavíkurflugvallar mig varða, t.d. varðandi trén í
    Öskjuhlíð. Það er sérstakt áhugamál hjá mér að við komum af stað og hefjum
    framkvæmdir sem allra fyrst við flugstöðina við flugvöllinn. Það er
    eiginlega til skammar að við séum með flugstöð frá 1946 og í því ástandi
    sem hún er í dag. Ég held að við séum að fá allt of fáa erlenda ferðamenn
    í innanlandsflugið, í þessari stærstu atvinnugrein okkar, við erum að fá
    um 2,4 milljónir erlendra ferðamanna hingað og þeir nýta sér ekki
    innanlandsflugið nægjanlega vel og þetta er ákveðinn gluggi fyrir okkur
    hvað það varðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi Loftbrúna þá endurtek ég það sem ég sagði áðan: Við erum
    að skoða þetta, bara þessa dagana, og ég á von á að það komi fyrr en
    seinna. Ég held að þessi málaflokkur sé gríðarlega mikilvægur.</ns:mgr>

    <!--sagði Fljótabrú-->

    <ns:mgr>Varðandi Fljótagöng <ns:bjalla/> þá er gert ráð fyrir
    hlutafjáraukningu til innviðafélagsins Ganga og brúar og það segir í
    greinargerðinni að slík hlutafjáraukning gæti verið í formi reiðufjár sem
    nemur hluta af stofnkostnaði verkefnisins eða annarra tekjuberandi eigna.
    Það er Vegagerðin sem er að vinna núna að undirbúningi af fullum
    krafti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>